Home / Icelandic / Icelandic Bible / Web / Sálmarnir

 

Sálmarnir, Chapter 130

  
1. Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn,
  
2. Drottinn, heyr þú raust mína, lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!
  
3. Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum, Drottinn, hver fengi þá staðist?
  
4. En hjá þér er fyrirgefning, svo að menn óttist þig.
  
5. Ég vona á Drottin, sál mín vonar, og hans orðs bíð ég.
  
6. Meir en vökumenn morgun, vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.
  
7. Ó Ísrael, bíð þú Drottins, því að hjá Drottni er miskunn, og hjá honum er gnægð lausnar.
  
8. Hann mun leysa Ísrael frá öllum misgjörðum hans.